Viðræður Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps um sameiningu
Fyrirsagnir frétta
Niðurstöður nafnakönnunar
14.05.2022
Niðurstöður könnunar á viðhorfi íbúa til þriggja
tillagna að nafni á sameinað sveitarfélag, sem fram fór samhliða
sveitarstjórnarkosningum, liggja fyrir. Nafnið „Húnabyggð“ nýtur
mestra vinsælda og nýtur stuðnings 66% þeirra sem létu álit sitt í
ljósi eða 443 einstaklinga.
Hvað á sveitarfélagið að heita?
12.05.2022
Samhliða sveitarstjórnarkosningum þann 14. maí
n.k. verður hægt að taka þátt í könnun á viðhorfi íbúa til
tillagna að nafni á sameinað sveitarfélag Blönduósbæjar og
Húnavatnshrepps. Þeir sem eiga ekki heimangengt á kjördag geta
tekið þátt í könnuninni með því að greiða atkvæði á skrifstofum
sveitarfélaganna á hefðbundnum opnunartíma fram að kjördegi.
Valið milli þriggja heita
02.05.2022
Íbúar velja á milli heitanna Blöndubyggð,
Húnabyggð og Húnavatnsbyggð í skoðanakönnun samhliða
sveitarstjórnarkosningum 14. maí næstkomandi.
Fimm tillögur að nafni sendar til Örnefnanefndar
07.04.2022
Á fundi undirbúningsstjórnar mánudaginn 4. apríl
sl. var farið yfir þær tillögur að nafni á sameinað sveitarfélag
sem bárust í hugmyndasöfnuninni á betraisland.is. Ákveðið var að
senda fimm þeirra til örnefnanefndar, sem lögum samkvæmt veitir
umsögn um nöfn sveitarfélaga.